Alþingi nauðgað.

Sjálfstæðismenn höfðu sitt fram.   Þetta verður aldrei gleymt.    Fari þessi flokkur og allt sem hann stendur fyrir norður og niður.    Það hlakkar í LÍÚ klíkunni núna.    Það er endanlega opinbert að Sjálfstæðisflokkurinn gengur ekki erinda þjóðarinnar heldur þeirra sem þykjast eiga allt saman hérna skuldlaust, frá orkunni til síðasta skötusels í sjónum.    

Þegar  "Miðbæjaríhaldinu" er misboðið þá er eitthvað mikið að innan Sjálfstæðisflokks.   Mikið að.  


mbl.is Stjórnarskrá ekki breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr heyr! Hver sá sem styður þessa vesældarafsökun fyrir flokk gæti allt eins beint afsagaðri haglabyssu að höfðum okkar allra og hleypt af.

Jón Flón (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 10:04

2 identicon

Bíddu eru sjálfstæðismenn ekki í minnihluta á Alþingi?

Gat heilög Jóhanna ekki bara komið þessu í gegn með þessum meirihluta sem hún hefur?  Hvað er málið?  Kannski það hafi hangið eitthvað meira á spítunni en mótþrói sjálfstæðismanna?  Kannski það hafi fleiri verið á móti þessu en þeir?  Kannski um það bil allir umsagnaraðilarnir?

Grétar (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 10:33

3 Smámynd: Birgir Hrafn Sigurðsson

Ég verð nú að segja, því miður, að sjálfstæðisflokkurinn virðist einn af fáum flokkum sem getur rifið okkur uppúr þessu. Að lækka laun og hækka skatta hljómar vel í sumra eyrum þó mér finnist það nú torskilið.

Birgir Hrafn Sigurðsson, 17.4.2009 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband