3.3.2009 | 15:36
Þá er það á hreinu!
Ekkert hugmyndafræðilegt uppgjör og ekkert ESB. Bjarni Ben. búinn að setja kúrsinn. Jú.. Sjallar bera smá (með afar sterkri áherslu á smá) ábyrgð en það er ekkert að stefnu Sjálfstæðisflokks. Öðru nær. Allt í himna lagi. Hagsmunum Íslands best borgið í EES og svo bara bla bla bla bla um ESB. Sem sagt áfram íslenska krónu. Útdeila eignum upp á nýtt og endurtaka leikinn eftir 10 ár. Lærir fólk aldrei?? Húmbúkk. Meira helvítis þvaðrið. Og þetta er maðurinn sem talaði um breytt gildi og ég veit ekki hvað og hvað korter eftir Hrun. Mesta sjokkið er að brá af honum... Greinilega. Auðmýktin horfin og gamla góða Sjallavillidýrið komið aftur upp á yfirborðið. Það má ekki auka ríkiseftirlit.. nei það verður allt að vera eins og það var. Sama kerfið. Bara breyta um fólk. Ég get orðið brjálaður að hlusta á svona bull.
Það verður fróðlegt að sjá hvað íslendingar gera í næstu kosningum. Er það hugsanlegt að íslendingar ætli að treysta Sjálfstæðisflokk áfram fyrir þjóðinni?
Hér var ekki hörð frjálshyggja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.3.2009 | 09:24
Hjaðningavíg
Ég er ekki hrifinn af prófkjörum. Finnst ekki gaman að horfa upp á samherja rífa hvern annann á hol. Leiðist þessi litlu einkastríð og skiptir þá ekki máli hvaða flokkur á í hlut.
Prófkjör Sjálfstæðismanna virðast ætla að verða sérstaklega illúðleg að þessu sinni. Guðlaugur og Illugi berast á banaspjótum og þessi frétt á ekki eftir að milda þann slag. Fannst ömurlegt að hlusta á Svein Andra í Silfrinu nota tækifærið þar í prófkjörsbaráttuna þar sem hann mærði Guðlaug í hástert og vó að heiðri Illuga á milli þess sem talaði um Ingibjörgu Sólrúnu eins og hún bæri höfuðábyrgð á Hruninu. Einstaklega ótrúverðugur og ósmekklegur málflutningur.
2.3.2009 | 17:47
Hægan nú!
Blóðug slagsmál skóladrengja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)