Steingrímur J. Norðmaður.

Steingrímur J.  var áhugaverður í Silfrinu.   Hann er sannfærður sem aldrei fyrr að vegir Íslands liggi til Noregs.   Gæti ekki verið honum meir ósammála.    Það verður ákaflega erfitt fyrir Samfylkingu að starfa með VG.   Reyndar er ákaflega erfitt fyrir hvaða flokk sem er að starfa með VG.

VG er á móti Evrópusambandsaðild.    Það er skýrt.   Þeir munu ekki taka þátt í ríkisstjórn sem mun gefa það út afdráttarlaust að það verði sótt um aðild.   Þeir munu reyna í lengstu lög að flækja málin með pólitísku þvaðri um allt og ekki neitt.   Eins og Sjálfstæðisflokkur er búinn að vera að gera undanfarin 10 ár.   Eins og Steingrímur var að gera í Silfrinu.

Samfylking verður mjög líklega eini flokkurinn með skýra stefnu í Evrópumálum í næstu kosningum -hvenær svo sem þær verða!   Mjög líklega með vorinu.

Einhver hinna flokkanna þarf að taka upp skýra stefnu sem er á móti Evrópusambandsaðild.   Þá hefur þjóðin í það minnsta skýra valkosti.    Það er ekki bjóðandi í ljósi kreppunar að bjóða fólki upp á innantómt bull um leppaðild að Noregi eða sömu hörmungas þvæluna um að nú sé ekki tími til að tala um ESB því það taki hvort eð er 150 ár að komast þar inn og taka upp evru.    Sömu rök voru notuð í góðærinu og nú á að endurnýja sömu rökin í kreppunni.   Hvenær er þá tími til að sækja um aðild?   Finnar sóttu um aðild í miðri kreppu.   Þeim hefur vegnað flott!   

Fólkið vill skýra stefnu.    Annað hvort á að sækja um aðild eða ekki.    Almenningur er búinn að fá nóg og hefur ekki áhuga lengur á málalengingum og pólitískri refskák.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekkert ESB, takk! Mæli með því að Evrópusambandssinnar taki sig saman í andlitinu og flytji í einu holli saman til Evrópu. Með því má í einu stökki losa þjóðina við vælukjóa og útrýma atvinnuleysi þeirra sem eftir verða og nenna að vinna sig út úr vandanum.

Jón Jónsson (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 17:15

2 Smámynd: Jón Halldór Eiríksson

Góður Jón Jónsson.   Þú ert í það minnsta á móti ESB.   Veist hvað þú vilt.   En það er nú óþarfi að stimpla 60 til 70% þjóðarinnar auðnuleysingja og vælukjóa þó hún sé ekki sammála þér.

Eftir inngöngu íslendinga í EES hefur það alltaf verið aðeins tímaspursmál hvenær skrefið yrði stigið til fulls.   Það er ennþá bara tímaspursmál.    

Jón Halldór Eiríksson, 2.11.2008 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband