Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
14.11.2008 | 15:29
Þolrifin teygð og slitin.
Nú reynir á þolrifin í þjóðinni. Sjálfstæðisflokkur er að gera mikil mistök held ég. Þeir hefðu þurft að afgreiða þetta fyrir Jól. Er ekki viss um að þjóðin sætti sig við þetta útspil uppá von og óvon.
Nú reynir á Þingflokk Samfylkingar að hafa hemil á sínu baklandi. Ólgan er mikil.
Ríkisstjórnin verður að skipta út í SÍ og FME á allra næstu dögum. Spurning er líka að endurskipuleggja ráðherrastólana. Ef það verður ekki gert þá mun allt loga hér í mótmælum áfram og spurning hvort ríkisstjórnin haldi.
Skynsamlegast fyrir Ríkisstjórnina núna er að ákveða kosningar í vor. Eina leiðin til að lægja öldurnar. Því enginn veit hvernig hildarleikurinn fer hjá Sjálfstæðisflokk. Verður hann Evrópuflokkur eða Einangrunarflokkur?
![]() |
Skipuð verði Evrópunefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2008 | 07:21
Engin Stefnubreyting!
Samkvæmt heimildarmanni Morgunblaðs:
" Ekki sé þó von á ákvörðun um stefnubreytingu gagnvart aðild að ESB á fundinum......"
Sjallar virðast við sama heygarðshornið. Þeim er sennilega lífsins ómögulegt að taka u-beyju í Evrópumálum þrátt fyrir að samfélagið sé á hvolfi. Þeir bera sennilega ekki gæfu til þess að breyta stjórnarsáttmálanum. Jæja... ef svo verður þá mun ég ekki styðja þessa ríkisstjórn. Eina leiðin til að styðja sitjandi ríkisstjórn er að hún taki upp beina stefnu á aðildarviðræður við ESB.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2008 | 20:45
Traust
Ingibjörg Sólrún á Stöð2 í kvöld. Hún var frábær. Talar skýrt. Ég treysti henni og Jóhönnu lang best.
Það er ekkert annað í stöðunni en að semja um Icesave málið. Íslendingar geta ekki hunsað EES samninginn. Og við erum ekki í aðstöðu til þess að standa í hárinu á Evrópusambandinu núna. Það á að ganga frá Icesave málinu þó það geti haft í för með sér allt að 300 milljarða reikning. Fá inn aðstoðina sem við þurfum til að neyðarstarta okkar elskulegu, yndislegu og frábæru íslensku krónu! Atvinnulífinu er að blæða út og það verður að stöðva þá blæðingu. Annars verður reikningurinn 100 sinnum hærri en 300 milljarðar.
Nú er bara að bíða og vona eilítið lengur.
Svo er allt að gerast í Sjálfstæðisflokknum. Kannski þessi ríkisstjórn endist kjörtímabilið!
Allt að gerast. Allt að gerast.
Áfram Ísland.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2008 | 10:19
Nú er Bleik brugðið!
Ég verð að viðurkenna að ég er mjög forvitinn að sjá hvað kemur út úr þessu samkrulli.....
Sjálfstæðisflokkur er kannski að vakna? Koma svo.... Burt með Seðlabankastjórn. Og ef ekki er hægt að koma sér saman um að stefna á ESB aðild.... Ákveða kosningar takk fyrir. Ekkert minna.
Ef eitthvert vitavonlaust hálfkák kemur út úr þessum umræðum verður allt vitlaust í þjóðfélaginu.
13.11.2008 | 09:14
Efnahagsganga Íslands
10.11.2008 | 11:58
Hvað er að gerast?
Hvað er að gerast með IMF lánið? Mjög misvísandi skilaboð eru að berast. Er lánið stopp vegna Breta og Hollendinga eða er það vegna þess að enginn vill lána Íslandi sem þarf til að IMF samþykki lánið? Og af hverju fáum við ekki lán? Er það vegna þess að íslendingar eru staðráðnir að semja ekki um Icesave? Skemmtilegur vítahringur eða hitt þó heldur!
Hvar eru vinir okkar Norðmenn núna? Hvar eru hinar Norðulandaþjóðirnar?
Miðað við þetta þá virðist Evrópa gengin í lið með Bretum og Hollendingum í Icesave deilunni.
Það lítur út fyrir að Íslandi séu allar bjargir bannaðar nema semja um Icesave.
Meðan atvinnulífinu blæðir út þá er Ríkisstjórnin ákveðin í því að gefa stórt fokk merki framan í Breta og Hollendinga. Þeir eru hins vegar harð ákveðnir í því að láta Íslendinga finna til tevatnsins.
Hvernig endar þetta allt saman?
Íslendingar eru staddir í verstu milliríkjadeilu Íslandssögunnar -mitt í verstu efnahagskreppu íslandssögunnar -og fáir eru að átta sig fullkomlega á alvarleika málsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.11.2008 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2008 | 17:56
Nóg tal.
Er ekki komið nóg af tali. Lúðvík Bergvinsson tekur þátt í umræðunni um dauða krónu. Stjórnarliðar tala og tala og tala. Meðan er allt á niðurleið. Seðlabankinn kemst upp með að hækka vexti og setja samfélagið endanlega á hliðina. Ástæðan fyrir stýrivaxtahækkun... neyðarstarta krónunni. Króna veikist áfram... ergó stýrivaxtahækkun er ekki að virka.
![]() |
Koma krónulufsunni" í gang á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2008 | 11:33
Þá er það vitað!
![]() |
Samskipti við IMF í hnút |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2008 | 14:40
Steingrímur J. Norðmaður.
Steingrímur J. var áhugaverður í Silfrinu. Hann er sannfærður sem aldrei fyrr að vegir Íslands liggi til Noregs. Gæti ekki verið honum meir ósammála. Það verður ákaflega erfitt fyrir Samfylkingu að starfa með VG. Reyndar er ákaflega erfitt fyrir hvaða flokk sem er að starfa með VG.
VG er á móti Evrópusambandsaðild. Það er skýrt. Þeir munu ekki taka þátt í ríkisstjórn sem mun gefa það út afdráttarlaust að það verði sótt um aðild. Þeir munu reyna í lengstu lög að flækja málin með pólitísku þvaðri um allt og ekki neitt. Eins og Sjálfstæðisflokkur er búinn að vera að gera undanfarin 10 ár. Eins og Steingrímur var að gera í Silfrinu.
Samfylking verður mjög líklega eini flokkurinn með skýra stefnu í Evrópumálum í næstu kosningum -hvenær svo sem þær verða! Mjög líklega með vorinu.
Einhver hinna flokkanna þarf að taka upp skýra stefnu sem er á móti Evrópusambandsaðild. Þá hefur þjóðin í það minnsta skýra valkosti. Það er ekki bjóðandi í ljósi kreppunar að bjóða fólki upp á innantómt bull um leppaðild að Noregi eða sömu hörmungas þvæluna um að nú sé ekki tími til að tala um ESB því það taki hvort eð er 150 ár að komast þar inn og taka upp evru. Sömu rök voru notuð í góðærinu og nú á að endurnýja sömu rökin í kreppunni. Hvenær er þá tími til að sækja um aðild? Finnar sóttu um aðild í miðri kreppu. Þeim hefur vegnað flott!
Fólkið vill skýra stefnu. Annað hvort á að sækja um aðild eða ekki. Almenningur er búinn að fá nóg og hefur ekki áhuga lengur á málalengingum og pólitískri refskák.
1.11.2008 | 12:18
Góðs viti?
Ingibjörg heldur Sjálfstæðismönnum við efnið. Ef til vill tekst Sjálfstæðisflokk að taka til hjá sér án þess að til stjórnarslita komi. Ég er ekki bjartsýnn á það. Ég held því miður að Geir sé heillum horfinn. Það er einhver taug á milli hans og Davíð Oddsonar sem nær út fyrir gröf og dauða. Geir mun aldrei ótilneyddur skipta um Seðlabankstjórn eða samþykkja að taka upp aðildarviðræður við ESB. Ég er ekki að sjá að þrýstingurinn sé nægilegur innan Sjálfstæðisflokks til að snúa Geir.
En Ingibjörg og þingflokkur Samfylkingar vill að sjálfsögðu gefa samstarfsfólki sínu eins langan tíma og hægt er. Ég skil þá ákvörðun að mörgu leyti. Ég bara hef ekki trú á Sjálfstæðisflokknum. Kannski er skynsamlegt að bíða þar til eftir áramót. Bíða eftir landsfundi Sjálfstæðismanna... sjá hvað gerist. Ég held að það gerist ekkert merkilegt, til þess er krumla Davíðs Oddssonar allt of sterk.
![]() |
Ingibjörg segir Davíð skaða orðsporið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |