Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
31.10.2008 | 20:21
Detta úr Náðinni!
Um það bil 50% þeirra sem kjósa Samfylkingu vilja kosningar ekki seinna en í gær. Ég er einn af þeim. Ég er þeirrar skoðunar að forsendur fyrir samstarfi við Sjálfstæðisflokk séu brostnar. Það er ótækt að styðja flokk til valda sem er að mestu ábyrgur fyrir mestu efnahagshörmungum íslandssögunnar. Þjóðin verður að fá að velja upp á nýtt. Ég studdi þetta ríkisstjórnarsamstarf í upphafi en ekki lengur.
Ég fæ sterklega á tilfinninguna að þingflokkur Samfylkingar sé ekki hamingjusamur með þennan hóp af fólki sem pressar á flokk sinn að slíta samstarfinu.
Þingflokkur Samfylkingar skuldar þessum hóp skýringar. Rökstuðning fyrir því að nú sé ekki tíminn til að ganga frá borði. Það þarf að taka þessa umræðu. Akkúrat núna hef ég í það minnsta óskaplega lítinn áhuga á hugmynda fundum og málefnavinnu. Akkúrat núna vil ég vita afhverju ég á að styðja þessa ríkisstjórn deginum lengur, því það er ekkert fararsnið á Samfylkingu.
30.10.2008 | 00:42
Persónugerfing
Nú eru allir að leggja Davíð Oddson í einelti og persónugera vandann og veit ekki hvað. Það er alveg bannað þegar þjóðin er með allt niður um sig og þó svo að títtnefndur Davíð Oddson eigi mikið í málum undanfarin 15 ár í íslensku samfélagi. Ætli það geti verið að hann eigi ekki eitthvað í kreppunni?
Sem sagt bannað að persónugera mistökin.
En hvað með þegar allt var í jollý og næs. Þá hefur nú ekki vantað persónugerfinguna. Enginn pólitíkus hefur verið settur jafn mikið á stall eins og Davíð Oddson. Það er sem sagt allt í lagi að persónugera ímyndað besta samfélag í heimi, besta hagvöxt, bestu útrásina, besta þetta og hitt.. þá má Davíð Oddson vera Kóngurinn og bestastur allra.
Geir Haarde hættu þessu hörmungas kjaftæði. Það er búið að skipta um stjórnendur í nýju Ríkisbönkunum og það ekki af ástæðulausu. Það er óumdeilt að peningamálastefna Íslendinga er að bíða algjört gjaldþrot. Nú er tími uppbyggingar. Nýr tími. Nú er tími til að setja nýtt fólk inn í Seðlabankann til að leiða nýja tíma. Burt séð frá störfum Davíð Oddssonar þá er hann algjör dragbítur á Seðlabanka Íslands sem á að vera hafinn yfir flokkadrætti og hagsmunapot.
Geir vertu maður en ekki mús... og viðurkenndu að ástæðan fyrir því að ekki er skipt um stjórnendur í Seðlabanka Íslands er sú, að þú tekur flokkshagsmuni fram yfir þjóðarhagsmuni.
Sannleikanum er hver fegnastur! Mundu það.
28.10.2008 | 22:41
Enn ein mistökin?
Getur verið að Seðlabankinn sé að gera enn ein katastrófu mistökin með risa stýrivaxtahækkun?
Samkvæmt þessari konu og fleiri hagfræðingum er verið að gera regin mistök. Samtök Atvinnulífsins og ASÍ eru þeirrar skoðunar líka.
Ef svo er... Að það sé verið að gera mistök þá er ríkisstjórnin ábyrg. Samfylking sýnu mest.
Er það svo að IMF hlusti ekki á sjónarmið hér innanlands og fari ekki ofan í kjölin á sögunni hérna eins og Gylfi Arnbjörnsson rakti bæði í Kastljósi og í Íslandi í dag.
Ég kaupi ekki þessa stýrivaxtahækkun sem skilyrði frá IMF fyrr en ég heyri það opinberlega frá Viðskiptaráðherra. Kannski er sú yfirlýsing komin. Hef ekki séð hana. Kannski einhver geti bent á það.
Það er eins gott að þessi aðgerð virki eins og hún á að virka því fórnarkostnaðurinn er hrikalegur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2008 | 12:30
Dabbi Króni
Krónan best segir höfðinginn í Svörtuloftum með sinni alkunnu hógværð og lítillæti!
Aðspurður um atvinnulífið og þeirra tillögur um stýrivexti.... " hvaða hvaða.... þetta vildu þeir. Þeir vildu IMF.. þeim er nær" Hann Dabbi... kann lagið á þessu. Nú geta fyrirtækin farið að vara sig... Dabbi er í fýlu.
"Segja af sér. Nei. Aðeins 500 hræður að mótmæla. Þjóðin elskar mig ennþá. Ég er bestur."
Hjálp. Er enginn sem getur bjargað þjóðinni frá þessum manni?
![]() |
Erfitt fyrir fólk og fyrirtæki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.11.2008 kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2008 | 08:23
Áfram Þorgerður
![]() |
Þorgerður: Taka þarf afstöðu til ESB og evru |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2008 | 01:15
Of skuldug!
Hér er smá tilvitnun í einn af ræðumönnum á Iðnó - fundinum
"Lilja sagði inngöngu í ESB ekki leysa vanda þjóðarinnar og benti á að við gætum ekki uppfyllt Maastricht-skilyrðin fyrir upptöku evrunnar þar sem skuldir okkar væru of miklar."
Er möguleiki að öfl í samfélaginu vilji frekar skuldsetja íslendinga norður og niður heldur en að ganga í Evrópusambandið?
27.10.2008 | 00:41
Uppgjörið!
Nú er staðan sú að Alþjóða Gjaldeyrissjóðurinn (AG) er að koma að málum. Óumflýjanleg niðurstaða. Með gjaldmiðil sem er botnfrosinn heima fyrir og ekki álitinn pappírsinns virði erlendis er það búið að vera deginum ljósara í nokkrar vikur. Flestum sérfræðingum ber saman um að ekkert annað er að gera í stöðunni. Til að þýða krónuna þarf gjaldeyrisflóð inn í landið. Til þess eru lánin. Aðkoma AG er heilbrigðisvottorðið og lánið frá þeim er aðeins byrjunin. Íslendingar munu þurfa að taka fleiri lán frá þeim sem vilja lána okkur! Persónulega er ég lítið spenntur fyrir láni frá Rússum. Vonandi munu Norðurlöndin koma hérna að málum með veglegum hætti. Vonandi gengur aðstoð AG og annarra snuðrulaust fyrir sig á næstu vikum.
Hvað gerðist eiginlega? Ég er einn af þeim sem er arfabrjálaður út í íhaldið. Ég held því fram fullum fetum að ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði borið gæfu til þess fyrir fimm til sjö árum að taka stefnuna á Evrópusambandsaðild þá stæðu Íslendingar ekki í þessum sporum. Það væri samdráttur og efnahagsþrengingar, en bankarnir hefðu komist af. Sjálfstæðisflokkurinn ber hina lang stærstu pólitísku ábyrgð. Alveg sama hvernig á málin er litið.
Uppgjörið verður að snúast um pólitíska grunnhugmyndafræði. Hrá markaðshyggjan eða nýfrjálshyggjan eða hvaða nöfnum fólk vill nefna það er að bíða algjört skipbrot. Ef Uppgjörið snýst ekki um þá staðreynd, þá er illt í efni. Sjálfstæðiflokkurinn er búinn að gefa út plötuna sína og hún ber yfirskriftina: Fjárhagsleg alheimskrísa lagði íslenskan efnahag í rúst. Með öðrum orðum... ekki benda á mig! Söngurinn er byrjaður. Sjálfstæðisflokkurinn, auðjöfrarnir og gömlu bankamennirnir (sem eru flestir einnig auðjöfrar eftir fjörið) munu flestir syngja þennan söng þar til þeir verða bláir í framan.
Hlutverk jafnaðarfólks - félagshyggjufólks er að kæfa þennan söng. Þar er hlutverk Samfylkingar stærst og vandasamast. Samfylking er í stjórnarsamstarfi með Sjálfstæðisflokk og því erfiðara að gagnrýna. Þess vegna má gagnrýnin ekki snúast upp í hefðbundinn sandkassaleik, hver gerði hvað og hver gerði ekki hvað! Nú þarf allt jafnaðar og félagshyggjufólk að snúa bökum saman og hamra látlaust á ónýtri nýfrjálshyggjunni. Ef við viljum sjá réttlátara, fjölskylduvænna og mannlegra samfélag þá verður Uppgjörið að snúast um grunngildin. Gefum engin grið. Sjáum til þess að Uppgjörið skili árangri. Íslendingar verða að læra af reynslunni.
Samfylking verður að spýta í lófana og fylgja eftir stefnu sinni um Evrópusambandsaðild. Það verður að endurskoða stjórnarsáttmálann á næstu mánuðum. Ef Sjálfstæðisflokkur er ekki tilbúinn til þess, þá er grundvöllur fyrir frekari samstarfi brostinn. Þjóðin bíður ekki í tvö til þrjú ár eftir umsókn í Evrópusambandið. Forsætisráðherra þrjóskast við að skipta út Seðlabankastjórn. Ekki vegna þjóðarhagsmuna heldur vegna flokkshagsmuna. Það er með öllu óþolandi. Nú er að byrja uppbygging nýrrar peningamálastefnu og það er skýlaus krafa að Ný Seðlabankastjórn taki við. Það er búið að skipta í öllum hinum Ríkisbönkunum! Sama á að gilda um Seðlabankann.
Lifi Uppgjörið!
Jón Halldór Eiríksson